6.5.2008 | 19:05
Bloggleti dauðans!!!!!
Nú er bara allt stopp hjá mér og ég bara nenni ekki að blogga.
Er dottin í facebookið.......................
Sjáumst síðar...................
Kv. Sigga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.4.2008 | 00:16
Jæja jæja
Hæ hó
Ætla að byrja á að óska Rán og Gilla innilega til hamingju með "Magneu" litlu sem kom í heiminn 17. apríl og var 16,5 merkur og 54 cm. Hlakka bara til að sjá litlu prinsessuna. Ég er búin að vera grínast með það við Rán að sjálfssögu verði hún að skíra stelpuna í höfuðið á mömmu sinni og þar af leiðandi mér
maður má láta sig dreyma.......... og talandi um að dreyma, mig dreymdi það að þau væru búin að skíra og að hún héti Ísabella Lea........ja nú verður að koma í ljós hvort að ég sé berdreymin 
Svo er nú bara allt að gerast í slotinu mínu fór til Rvk á föstudaginn til að skoða heimilistæki og ákvað ég að láta reyna á Ikea í því og leist bara svo vel á það að ég skellti mér á pakkann þar, þ.e. ofn, helluborð, viftu, uppþvottavél og ísskáp. Fjárfesti líka í gardínum, þannig að nú fer þetta heldur betur að styttast og finnst mér það nú frekar óraunverulegt verð ég að segja. Það er þá bara eftir að koma heimilistækjunum fyrir og jú eitthvað er eftir að gera í rafmagni og svo er þetta bara klárt held ég............OMG 
Þarf svo að fara aftur til Rvk á mánudag á að mæta þar í starfsmannasamtal hjá mínum yfirmanni og þar þarf ég heldur betur að urra, og það hátt því ég er ekki sátt núna og er að semja stóru ræðuna í kollinum. Verð bara yfir pirruð og reið þegar ég hugsa um þetta.....uuuuurrrrrr. EN það er efni í aðra bloggfærslu, en sú færsla yrði um ÓB-stöð, Landvegamót og hann Berg vin minn frá Lyngási. En leyfi ykkur að fylgjast með þessu.
Gaman að sjá þegar nýtt fólk villist hér inn á síðuna og kvittar fyrir innlitið bara gaman af því og takk fyrir það.
Koma svo í kvittinu krakkar mínir!!!!!
Sigga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
13.4.2008 | 22:16
Snjór snjór snjór
Hó hó
Ja það er nú eitthvað andleysi yfir manni þessa dagana.
Mikið asskoti varð maður nú hissa í morgun þegar maður leit út og það var allt hvítt úti, fór að sofa um 2leytið í nótt og þá var enginn snjór en svo var bara 20-30cm jafnfallinn snjór. Ég sem hélt að ég myndi stíga á grænt Ísland þegar ég kom heim frá Kanarý eeeennnnnn það var ekki svo gott. Meira segja kvöldið sem við komum heim þá var Hellisheiðin lokuð.....ja maður spyr sig, af hverju í lífinu framlengdi maður ekki dvöl sinni á Kanarý
En það er nú alltaf gott að koma heim og sofa í sínu rúmi.
Sagan af myndavélinni
sko, þannig var að ég týndi myndavélinni minni á þorrablótinu, auglýsti eftir henni í búkollu og bara ekkert gerðist. Og var ég búin að ákveða að fjárfesta í nýrri vél en sem betur fer nefni ég það við fólkið mitt úti á Kanarý og þá verður Rúnar eitthvað skrítinn og spyr;"hvenær týndiru henni....?" Nú á þorrablótinu
. Rúnar og þau voru í nefndinni með mér og þá segir hann......getur verið að það sé myndavélin þín sem er heima..........? og já það var hún.......... svo ég var ekki með neina myndavél á Kanarý
en það eru til myndir. Veit ekki hvenær ég verð nógu mikið tölvugúru til að setja myndir hingað inn ennnn vonandi gerist það einhvern daginn. 
Svo var ég svo "ossalega heppin" á leiðinni heim í flugvélinni að það lenti eldri maður við hliðina á mér og kræst hvað hann gat talað úff úff úff. Hann hét Sigurgeir og verður áttræður á árinu á íbúð á Kanarý en býr í Kópavoginum, á fimm uppkomin börn eitt læknir. Konan hans dó ´93, hann lærði kokkinn og var bryti á Fossunum hjá Eimskip, rak Silfurtunglið á sínum tíma. Hann og fjölskyldan fóru til USA árið 2000 og fóru til San Fran. bla bla bla. Og það var alveg örugglega eitthvað meira en ég man það bara ekki í bili, jú svo drekkur hann ekkert þegar hann er á Íslandi en finnst gott að fá sér þegar hann er á Kanarý og kallinn hellti í sig í flugvélinni, mér datt í hug Stella í orlofi, "þett´er sísta vínið som jeg drekka í lífet" svo þegar við vorum um það bil að lenda þá þambar hann restina af bjórnum og segir svo" GAME OVER" þá er það bara búið. Þá átti ég bágt með mig, bara fyndið.
Í síðustu viku fékk ég einhverja helv.pest og ég var bara heima mið, fim og föstudag. Það eru ár og aldir síðan ég hef verið heima veik í þennan tíma og það ætla ég að vona að það verði ár og aldir þangað til þetta gerist aftur. Fékk svo góða heimsókn frá Þórunni í gær fórum og fengum okkur að borða í Árhúsum tókum svo smá rúnt um Hellu og sýndi ég henni slotið mitt og síðan réðumst við inn til Sólrúnar og þar sátum við fram eftir nóttu og kjöftuðum frá okkur allt vit.................
og mikið rosalega var þetta gaman.
Jæja nóg af bulli í bili
Sigga
Es. Hvað með kvittin......????? KOMA SVO!!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.4.2008 | 23:03
Komin heim................
Ja hallú, það er bara pressa í gangi. Og ég sem er ekki að nenna þessu bloggi............
Það var alveg ossalega fínt á Kanarý fórum þangað stór hluti af fjölskyldunni þ.e. Dóra og co, Rúnar og co. og svo ég og mamma. Svona var hópurinn fyrri vikunna svo síðari vikuna birtust "óvænt" Eiður og co. (ég hjálpaði þeim að plana það
) Það var frekar fyndið að sjá svipinn á fólkinu þegar þau sáu þau. En bara gaman að því, en það var svolítið spaugilegt að koma á veitingastað og spyrja um borð fyrir 15, nógu erfitt var það fyrri vikuna og þá vorum við "bara" 10. En það reddaðist alltaf.
Höfðum það rosa gott við að gera bara ekki neitt. Farið út að borða á hverju kvöldi og eitthvað "örlítið" var nú drukkið af bjór og þessu hvíta sem ég hef aðeins minnst á áður
, en mest var maður nú í vatninu. Svo var bara legið, setið og hangið og haft það notalegt vorum mjög heppin með veður en það kom ekki dropi úr lofti. Hitastigið var svona um 20-25 gráðurnar en það fór eitthvað yfir 30 gráðurnar en þá var heitt en sem betur fer var nánast alltaf vindur/gola.
Við skelltum okkur í rennibrautargarð, ég ætlaði nú ekki að fara en svo skelltum við Linda okkur og vorum við ekkert minna í rennibrautunum heldur en krakkarnir, eina leiðinlega var að það var alltof langt að hlaupa upp aftur (meiri haugurinn
). Ég, Linda og Eiður fórum í kapp niður eina braut, svona bláa bylgjubraut, en ég sá ekki hver var fyrstur þar sem augun voru lokuð en ég er nokkuð viss um að ég hafi unnið...................
. Fyndið í þessari braut nær maður svo rosalegum hraða að maður fleytir kellingar á lauginni fyrir neðan hahaha bara fyndið, en maður þarf sko að laga sig áður en maður fer uppúr, ná í sundbolinn ja jú nóv ver
. En þetta var alveg ossalega gaman og alveg ótrúlega hvað maður getur gengið í barndóm.
Jæja ekki meira í bili
Sigga
Es. Myndavél...........ja það er nú saga að segja frá því................seinna 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Sigríður Magnea Sigurðardóttir
Nýjustu færslur
- 6.5.2008 Bloggleti dauðans!!!!!
- 20.4.2008 Jæja jæja
- 13.4.2008 Snjór snjór snjór
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 5117
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


bestalitla
loathor
